Semana Santa o.flSunneva Sverrisdóttir

Hef ekki bloggað mjög lengi og ætla að reyna að skrifa aðeins um síðastu vikur. Langar samt að byrja á að tala um að ég er orðin spennt fyrir næstu viku þar sem ég, bróðir minn og systir erum að fara til Flórída!.. Byrjum á að fara til Miami í 4 daga og ætlum að versla, fara á ströndina og djammið þar en svo förum við til Orlando í 7 daga þar sem við ætlum að versla meira en aðalega fara í skemmtigarðana þar, planið er víst að kíkja í einhverja 4 garða!

hlakka til að prufa þennan!



og þennan!.. 

Enjá, ætla að tala aðeins um Semana Santa/Spring Break/Páskarnir.. Ætla að reyna mitt besta til að rifja þetta upp 

Fimmtudagur: Hondúras - Mexico kepptu í fótbolta, ég og einn vinur bróðir míns fórum á bar að horfa á leikinn, barinn var troooðfullur og hittum þar eitthvað fólk.. Leikurinn var sjúkur, Hondúras vann að sjálfsögðu. Eftir það þá er svona carravan þar sem að allir bílarnir fara út á aðalgötuna og allir að drekka bjór og skvetta vatni á hvorn annan og ég veit ekki hvað.. Kom meira að segja einhver sjónvarpsstöð að taka viðtal við mig, celeeeeb.. þetta var allavegna eitt af þvi skemmtilegasta sem ´ge hef gert hér

Við á leiðinni á carravanið

Föstudagur: Ég, systir mín, bróðir minn, kærasta bróðir míns (eru reyndar hætt saman núna), og Kike vinur bróðir míns fórum öll á La Cazona sem er skemmtistaður hér, það var eitthvað pólitískt partý þar og var bara mjög fínt, fórum svo á 2 aðra skemmtistaði í svona klukkutima á hvorum og vorum komin heim um 5 leitið.


Vinur systur minnar, systir mín, bróðir minn, kærasta han(fyrrverandi núna), besti vinur bróðir míns (Kike)

Ég og systir mín á einhverjum skemmtistað

Laugardagur: Man voðalega litið eftir þessum degi.. Besta vinkona systir minnar sem á heima í Miami kom í heimsokn til La Ceiba og við fórum ásamt henni á einhverja skemmtistaði um kvöldið.

Besta vinkona systur minnar (Tumba) og Ég

Sunnudagur: Fórum ekki á ströndina þar sem það rigndi í fyrsta skiptið síðan ég kom hingað! Fórum á rútustöðina og sóttum frænku mína og frænda.. allir að byrja að koma inn í borginna þar sem semana santa var að byrja.. Ég, Systir mín og frænka mín fórum svo út um kvöldið, fórum á einhvern nýjan bar hérna ásamt vinum systur minnar, það var bara næs, ekkert skemmtistaða stand þann daginn, bara tjill stemming.

Frænka mín og Enrique (átti enga mynd frá kvöldinu)

Mánudagur: Morgan sem er skiptinemi frá Bandaríkjunum kom til La Ceiba og ég hitti hana, fórum í göngutúr og fengum okkur að éta og svona.. Svo skutluðum við henni til foreldra sinna og sóttum kærasta systur minnar á rútustöðina (hann er í háskóla í bandaríkjunum og býr þar) .. Fórum svo á einhverja skemmtistaði um kvöldið, vinur bróðir mins kom svo og náði í mig og við fórum á svona Rave tónleika á ströndinni með bræðrum hans og systir.


Á þessu rave dæmi á ströndinni

Þriðjudagur: Eina kvöldið af 2 sem við fórum ekki út! vorum bara heima að tjilla, borða, horfa á sjónvarpið og aðeins að safna orku, heheh

Miðvikudagur: ströndin um daginn .. man voðalega lítið, fórum allavegna á djammið um kvöldið á skemmtistað sem heitir Hibou.. það var fíínt

Fimmtudagur: Ströndin um daginn.. en þar sem Fimmtudagur og Laugardagur eru svona stærstu djammdagarnir í spring break vikunni og við sváfum lengi út þar sem við ætluðum að vera lengi úti um nóttina.. Fórum öll á Le Pacha, sem er nýr skemmtistaður hér.. stærsti skemmtistaðurinn í allri mið-ameríku! Þar voru tónleikar og staðurinn var troðfullur. Fýla þennan stað í botn, sundlaug inná staðnum og ég veit ekki hvað.. var mjög skemmtilegt kvöld, komum heim um 5-6 leitið eftir góða grillsamloku á bensínstöðinni

mynd af tónleikunum á Le Pacha skemmtistaðnum
 


Föstudagur: fórum á ströndina og ákváðum að gista þar, vorum á ströndinni á fjórhjólum og eitthvað svona, um miðnætti fór ég svo með Carlosi á ströndina þar sem voru krakkar að grilla og drekka.. vorum þar í dálitla stund en fórum svo á ströndina og keyrðum einherja keppnisbíla sem hann á.. Spiluðum svo ping pong og pool þar sem að maðurinn á allt mögulegt í strandhúsinu sínu.. sofnaði svo um svona 3-4 leitið og svaf til 4 (y)

.

love it

Laugardagur: Vorum á ströndinni um daginn, ég og frændi minn fórum á hótelið sem er vði hliðina á strandhúsnu okkar, það er fínasta hótelið hérna og sjúkt að tjilla þar.. Strákarnir kepptu svo í blak móti á ströndinni og maaaan ekki meira.. Fórum svo um kvöldið á Hibou og Le Pacha, það var sjúklega gaman um kvöldið þar sem allir í borginni voru á Hibou og Le Pacha, vívívívívíví..

kærasti systur minnar, hún og ég

víjj


Sunnudagur. bara allir að fara frá la ceiba og spring break búið

Svo er ekkert spennandi búið að gerast eftir spring break, vikan eftir það var HAUGA vika, gerði ekki neitt, bara eitthvað aðeins í skólann og svo núna um helgina var bara video-gláp á föstudeginum og á laugardeginum fór ég með bróðir mínum og vinum hans á einhvern bar hérna og kíktum svo aðeins á einhverja skemmtistaði en vorum bara komin tiltörulega snemma heim

núna er ég bara að bíða eftir þvi að fara til Miami!

annars held ég að þetta verði næst seinasta eða seinasta bloggið mitt.. held að það sé alveg nóg fyrir fólk að skoða myndirnar á facebook, og ég þoooooli ekki hvað það eru sjúklega margar heimsóknir en samt nennir enginn að kommenta

Knús til allra á klakanum, Sunneva! 

Mánuður!Sunneva Sverrisdóttir

Eftir 3 daga er mánuður síðan að ég fór frá Íslandi! sakna þess óneitanlega að fara á rúntinn með stelpunum/strákunum mínum og maður saknar nú líka fjölskyldunnar pínu. Annars get ég ekki sagt að ég sakni skólans, matarins, djammsins, veðursins, og þessum beisik dögum á klakanum.. þar sem allt síðarnefnt er muuun betra hér


skype !

Helgin var mjög góð að venju og ég ætla að segja aðeins frá henni + skóladögunum.

Mánudagur: Skóli - Tennisæfing - Spila meiri tennis
Þrijudagur: Skóli  - Tennisæfing
Miðvikudagur: Sleppti skóla  - Tennisæfing - Spila tennis
Fimmtudagur: Skóli  - Tennisæfing - Á bar að horfa á fótboltaleik

s.s venjulegir dagar eru; Skóli,Hádegismatur, Tennis og svo fer ég venjulega á kvöldin í eitthvað af kvikmyndahúsunum, að spila meiri tennis, horfa á mynd með bróðir mínum eða fara út á lífið eða partý þegar á við fimmtudaga.

ojæja, að helginni

Föstudagur: Skóli - þar sem semana santa er í þar næstu viku vorum við allan daginn að horfa á einhver lítil leikrit úti og á ströndinni (þar sem skólinn minn er á ströndinni) .. Eftir skóla fór ég heim og borðaði hádegismat með fjölskyldunni eins og venjulega, lagði mig í klst og fór á tennisæfingu. Eftir æfingu fór ég svo heim í sturtu og glápti aðeins á sjónvarpið en klukkan 9 leitið komu strákarnir að sækja mig þar sem að Enrique átti afmæli og við fórum á einhvern stað á ströndinni. Hann var öðruvísi en því sem ég hef vanist hér í La Ceiba, það var svona latín hljómsveit að spila, og hengirúm útum allt á ströndinni og að var bara mjög næs að tjilla þar í einhverja klukkustundir.

Laugardagur
Vaknaði og var í þvílíkri leti allan daginn, fór aðeins út með systur minni að skutlast en var annars bara heima að horfa á sjónvarpið og sofa, um kvöldið fórum svo ég og systir mín út með Jimmy vini hennar frá teguzigalpa og Carlosi.. Hittum alveg fáránlega mikið af fólki og mér fannst þetta vera skemmtilegasta kvöldið so far, við komum svo heim klukkan 6 um morgun og þurftum að vakna klukkan 9 til að fara á ströndina..

Sunnudagur: eins og eg sagði vöknuðum við klukkan 9 og við fjölskyldan fórum í strandhúsið.. Átum steikur og kjúklingavængi og forum að sjálfsögðu í sundlaugina. Það er annað strandhús við hliðina á okkur og þau eru fínt vinafólk foreldra minna og eiga stráka sem eru 1 og 2 árum eldri en ég sem voru þarna með nokkrum vinum sínum, þau voru að fara á jet ski og buðu mér með..  án efa það skemmtilegasta sem ég hef gert frá því að ég kom hingað!! ég hef farið áður á svona en þá erum við að tala um leigt þar sem þú borgar 5000 kall fyrir klst á einhverju kraftlitlu dóti.. neinei þetta var sko ekkert svoleiðis, vorum án djóks á þessu í svona 3 klukkutíma og ekkert eðlilegt við hvað þetta komst fáránlega hratt!

Svo keyrðum við heim og þau eru í kvikmyndahúsinu en ég hérna heima að skrifa þetta blogg að fara út að hitta einhverja vini systur minnar með henni..  

Eins og þið getið séð er allt í himnalagi og ég er bara sátt með lífið, er búin að kynnast rugl mikið af fólki í skólanum mínum, farin að spila tennis meira en ég gæti einhvertíman ýmindað mér, orðin druuuuuullluuu tönuð, og næsta vika verður án efa ólýsanleg því í næstu viku byrjar..
SPRING BRAKE: þetta á víst að vera geðsjúkasta vika ársins, það koma fleiri þúsundir manna hingað til La Ceiba og það er STANSLAUST djamm frá miðvikudegi til miðvikudags. Allir hanga á ströndinni á daginn og fara svo á skemmtistaði á kvöldin eða í huges partý á ströndinni með bonfire og ég veit ekki hvað. Svo má ekki gleyma að það er nýr sjúúúkur fáránlega stór skemmtistaður að opna í spring brake!
mamma.... pabbi.... ekki örvænta, ég mun koma heil á húfi heim!


nenni ekki meira
SUNNEVA OUT....

p.s það er eitt sem ég fýla ekki og það er mamma mín hérna.. hahah hún er alveg ágæt svosem en hún er svo fúúúúl alltaf, og með þvílíkar skapsveiflur!! eyði nú bara að meðal tali hálftíma-klst með henni á dag svo þetta fer ekkert í taugarnar á mér þannig séð, en þetta er bara svo fáránlega ólíkt minni eigin móður(sem er óneitanlega besta mamman) að mér finnst þetta skrýtið. 

p.s 2: hef ekkert tekið myndavélina mína með mér þar sem ég var svo dugleg fyrstu helgina, kannski tek ég hana eitthvað pínu í spring brake ef ég nenni að hafa hana á mér. 

Eina myndin sem ég hef tekið frá því fyrir 2 vikum.. 2 bekkjarsystur mínar.

Vika liðin í La Ceiba!Sunneva Sverrisdóttir

Núna eru tæplega 2 vikur síðan að ég fór frá íslandi og komin heil vika sem ég er búin að búa í La Ceiba.. Ég ætla að reyna að hafa þetta ekkert allt of langt þar sem mig langar að fara að sofa því ég er dauðþreytt eftir langa viku. 

Ég fór fyrsta daginn minn í skólann á þriðjudaginn! Skólabúningurinn minn er dökkblátt pils og ljósblá skyrta (sleppi samt að setja mynd af búningnum) .. Krakkarnir eru bara mjög skemmtilegir og allir rosalega almennilegir, kennararnir eru ágætir og skólinn sjálfur ágætur. Fyrsti dagurinn var vægast sagt skrýtinn, í 1. lagi var náttúrulega horft aðeins of mikið þar sem ég er eina ljóshærða stelpan með blá augu í allri borginni (án djóks) , svo fannst mér stórkostlegt að fylgjast með þvi hvernig bekkurinn hegðar sér hahah! Það eru alltaf allir öskrandi, hlæjandi eða syngjandi og kennurunum er alveg sama. í 3 lagi þá voru einhverjir krakkar að biðja mig um að koma með sér út á eyjar seinna í mánuðinum, aðrir að biðja um að koma heim til mín og ég veit ekki hvað. vægast sagt opið fólk.

Ég byrjaði svo á tennisæfingum í þessari viku og gegnur bara ljómandi vel. Ég held samt að það sé ekkert spurning um hvort ég fitni eða ekki heldur bara hvort ég komi 5 eða 10 kílóum þyngri heim. Við erum neflinlega með vinnufólk fólk allan daginn og það eldar endalaust ofan í mann linnu laust, samt frekar næs að þau þrífi allt og taki allt til. 

En helgin var annars bara mjög góð! 
Á fimmtudag fór eg með systur minni og vinum hennar á einhverj 2 staði, 
á föstudeginum fór ég með bróðir mínum og vinum hans á 2 staði, 
laugardag byrjaði ég á því að fara í paintball með vinum bróðir míns og svo um kvöldið fórum við út a´stað sem heitir Hibou. 
Sunnudagurinn var svo afslöppun þar sem við fórum í strandhúsið og þjónustufólkið sem vinnur þar eldaði kótilettur, hamborgara, tortillas og ég veit ekki hvað og hvað! Vinir mady komu svo og borðuðu, spiluðu vatna handbolta oooog ég nenni ekki að blaðra meira um daginn.

Skelli annars inn nokkrum myndum hérna í endan en ég er samt búin að setja helling af myndum á Facebook

að fara á æfingu


a

á club cazona
E
Bara venjulegur fimmtudagur, aaalveg eins og íslenskir fimmtudagar


Föstudagur; Kannski að ég læri ekki bara að dansa heldur líka syngja, 2 flugur í einu höggi

paintball

Ég og nýja systir mín

Hibou

"Mamma og Pabbi"

Sundlaugin í strandhúsinu
 

ströndin fyrir framan strandhúsið
 
já og vildi minnast á skemmtistaðina hérna, þetta er aaaalllt öðruvísi en heima! Það eru allstaðar svona venjulegir barir úti og inni en svo eru dansgólf og svona nokkur hundruð manns inná þeim, 2-3 dansgólf á hverjum stað, svo eru bara pör sem dansa (stelpa og strákur) og það eru engir djók dansar heldur Salsa, Mambó, Raggeaton, Marimba o.s.frv.. Verð orðin betri en Denise þegar ég kem á klakann! 

eins og þið getið kannski ýmindað ykkur þá er ég að eiga 'The time of my life' allt er frábært, fjölskyldann, skólinn, umhverfið, fólkið, kúltúrinn og ég gæti haldið áfram endalaust!
eitt orð: Fullkomið ;)

læt ykkur svo vita þegar ég byrja að sakna íslands
Hasta la vista Amigos!
P.s þau eru búin að segja að hver sem er af vinum mínum megi koma í heimsókn, stelpur ég lofa ruddalegu djammi og góðu veðri allan tímann! 

Hola!Sunneva Sverrisdóttir

Fyrsta blogg frá Hondúras! Nú er ég búin að vera hér í 4 daga og ég ætla að taka stuttan úrdrátt og segja frá því helsta..

Stelpurnar mínar komu og kvöddu mig á miðvikudeginum og í hádeginu á fimmtudaginn lagði ég af stað til Keflavíkur. Um 6 leitið kom ég til New York ogég þurfti að bíða í 12 tíma eftir næsta flugi.. Eg var svo heppin að Ragnheiður Soffía á heima á Manhattan og svo ég fékk að fara í heimsókn til hennar. Kíkti á Times Square og svona.

stelpurnar mínar
 
Ragnheiður Soffía


Eftir 2 flug - 20 klst kom ég loksins til höfuðborgarinnar (Teguqigalpa) og þar tók á móti mér fjölskylda, ég s.s fór í bæinn minn á Sunnudegi(ídag) og þurfti að fá bráðarbirgðarfjölskyldu fyrir helgina. Þau voru mjög almennileg, foreldrar, 3 litlir strákar og 1 eldri stelpa. Ég fór fyrri daginn í skólann þeirra að skoða hann, keyrði um höfuðborgina, fór að horfa á strákana keppa í sundi, fór í sólbað, út að borða með þeim og svo um kvöldið tók Gabi(dóttirin) mig á næturklúbb/bar.


Húsið þeirra

Mariel, Sebastian y Marbie

Marino og Sebastian ,þykir venjulegt að keyra með 1 árs börn.. Sebastian er annars eitt fallegasta barn sem ég hef séð á minni æfi!!

Laugardaginn vaknaði ég svo kl 7 og fór á AFS komunámskeið. Við vorum 11 krakkar á námkeiðinu, frá Sviss, Japan, Þýskalandi, Bandaríkjunum og svo ég frá Íslandi. Vorum allan daginn á þessu námskeiði sem var fyrilestur en fórum og fengum okkur að borða á Hondúröskum veitingastað. Um kvöldið var svo partý þarna því forseti AFS kom í heimsókn. Fengum meiri Hondúraskan mat og kynntumst fullt af fólki sem vinnur fyrir AFS.

Man ekki nöfnin á öllum, en já.. Við á veitingastaðnum


Hjá afs

2 af stelpunum í rútunni til San pedro soula.

Á sunnudeginum tók ég svo rútu í nokkra tíma með 3 öðrum skiptinemum og hitti svo fjölskylduna mína í San Pedro Sula. Þau eru bara aðeins of næs og skemmtileg! Gæti valla verið sáttari. Við fórum í supermarket að kaupa mat og svo á Fridays að borða. Það er btw óeðlilega mikið af skyndibitastöðum hérna , liggur við að það sé meira af þessu hér heldur en í Bandaríkjunum. Við vorum allavegna komin til La Ceiba klukkan 7 og það var orðið dimmt svo ég sá ekki borgina. Ég held ég viti samt hvað þetta snýst allt saman um hérna.. Þegar ég segji fólki að ég verði í La Ceiba þá er það sem þau segja er ; PARTY, BEACH, PARTY, BEACH... greyið ég :( Systir mín er líka búin að segja að tíbísk vika hér sé mán- mið skóli og bara tjilla með vinum, bío eða að versla.. fim-laug: partý .. sun: ströndin og bíó

allavegna.. við fórum svo í eitt af kvikmyndahúsunum sem þau eiga, hitti þar nokkra af vinum þeirra og bróðir minn líka í fyrsta skipti. Fórum svo heim um 10 leitið og ég er bara búin að koma mér fyrir og svona.
(koma myndir í næsta bloggi af fjölskyldunni og bænum)

ætla að enda þetta á nokkrum atriðum sem mér finnst skrýtin eða fyndin:

--Það eru nánast engar umferðareglur í höfuðborginni, fólk keyrir með 9 manns í 5 manna bíl, haldandi á smákrökkum á 150km hraða. t.d þegar ég var með fjölskyldunni sem var með mig fyrstu helgina klessti maðurinn á bíl og það var bara venjulegt og keyrt í burtu, hahah!

--löggunni er sama þótt að þú brjótir lögin bara svo lengi sem þú gefur þeim pening.

--Það er allt fáránlega ódýrt hérna!
Bío: 150 kr
Stór bjór: 100 kr.
kokteilar ofl: 200 kr.

--Það er hræðilegt að vera í sama bolnum 2 daga í röð, þykir bara viðbjóðslegt hérna.

Og að sjálfsögðu margt fleira en þetta er svona það sem mér finnst virkilega áberandi

Það sem komið er af dvöl minni hérna er langt fram úr væntingum! Án efa eitt fallegasta land sem að ég hef komið til, fólkið er allt rosalega almennilegt og gæti ekki beðið um betri fjölskyldu!(allavegna af því sem ég hef séð so far) svo má ekki gleyma veðrinu, það er fullkomið!! og svo hef ég ekki séð eitt skordýr fyrir utan nokkra maura.. er aðeins of sátt með að það sé ekki allt morandi í þessu 

Ég fer svo í skólann minn í þessari viku , mjög spennandi að sjá hvernig það verður! Annars verður það ekki lengra í bili, þetta blogg er nú þegar orðið mun lengra en það átti að vera..

Buenos noches!

 

P.s getið ekki alltaf öfundað mig svona mikið!! 

Komin með fjölskylduSunneva Sverrisdóttir

Loksins er ég komin með fjölskyldu úti og mér lýst ekkert smá vel á hana. Fjölskyldan býr í 200.000 manna borg sem heitir La Ceiba sem er þriðja stærsta borgin í Hondúras og er við strandlengju sem liggur að Karabískahafinu.


Mynd tekin í google earth frá google


Ein frá ströndinni þarna í La Ceiba


Í fjölskyldunni eru pabbinn (Herman) mamman (Martha) sonurinn (Geza / 23 ára) og dóttirin (Mady / 21. árs)
Herman á næturklúbb, Martha er manager hjá movie theatre og Mady gengur í háskóla þarna en ég er ekki viss með Geza. Þau búa í íbúð í miðbænum og tekur nokkrar mínútur að labba á ströndina en svo eiga þau líka hús á strönd í 
korters fjarlægð sem þau fara í um helgar. Þau segja mér að þau djammi mikið og bærinn þeirra á að vera þekktur fyrir gott næturlíf.  


Geza, Mady og kærastinn hennar Javier



Mady á ströndinni


hún og vinkonur hennar


Lengst til vinstri er Herman og svo Martha (mamma og pabbi) og lengst til hægri Mady


Vinir þeirra og þau fara víst oft á ströndina og eru þá i þessari sundlaug mikið (held hún tilheyri húsinu á ströndini)

Herman fer víst mikið í golf og hefur áhuga á bátum og þau eiga bát sem þau taka oft út á eyjar sem eru þarna rétt hjá , Roatan, Utila o.fl



Strönd á einni af eyjunum, frekar næs

Ég veit annars ekkert mikið meira fyrir utan að þau eru frekar frjálslega og eflaust ágætlega efnuð - ég veit hvað skólinn minn heitir en finn ekki neitt um hann en Mady sagði mér að hann væri bara rétt hjá og það er víst mikið af fólki í honum og svo þarf ég náttúrulega að vera í einhverjum skólabúningi. Annars er skólinn og heimlið rétt hjá hvort öðru og ströndin er í 5 mínútna göngufjarlægð.

það var ekki fleira í bili - megið bara búast við að næsta blogg komi frá mér eftir að ég er komin út en ég verð allavegna vel net tengd þar sem þau eiga öll facebook, msn o.fl og eru með neit heima hjá sér.

Sunneva- komandi hondúrasbúi!


 

 

 

 

 

 

fyrsta bloggSunneva Sverrisdóttir

Mér var bent á að fá mér svona bloggsíðu og ég ákvað að stofna eina slíka. Hér mun ég setja af og til fréttir & myndir af lífinu og tilverunni úti í Hondúras en ég er að fara þangað í lok Febrúar sem skiptinemi fyrir þá sem ekki vita. Ég hef svosem ekki frá miklu að segja þar sem ég hef ekki hugmynd um hvar ég verð og er ekki enn komin með fjölskyldu en þetta er allt frekar spennandi !

set að öllum líkindum upplýsingar o.fl um fjölskylduna þegar ég hef fengið hana - annars var það ekki fleira í bili..

- Sunneva hondúrasfari Smile 

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sunneva Sverrisdóttir
  • Netfang: sunnevasverris@hotmail.com
  • Símanúmer: 8658226
  • Hjúskaparstaða: einhleyp
  • Um mig: 17 ára Vesturbæingur að fara til Hondúras sem skiptinemi í einhverja mánuði

Könnun

Muntu sakna mín?